Röskun á skólastarfi og öðru starfi sveitarfélagsins - upplýsingar til íbúa/foreldra/forráðamanna- English below

Röskun á skólastarfi og öðru starfi sveitarfélagsins - upplýsingar til íbúa/foreldra/forráðamanna

Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna fyrir allt landið vegna aftakaveðurs á morgun, föstudag 14. febrúar. Rauð veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir höfuðborgarsvæðið frá kl. 7 í fyrramálið sem þýðir að fólk á ekki að vera á ferðinni nema brýna nauðsyn beri til. Reglulegt skólahald fellur niður en leikskólar og grunnskólar verða engu að síður opnir með lágmarksmönnun fyrir fólk sem þarf nauðsynlega á vistun fyrir börn sín að halda – það er fólk sem sinnir neyðarþjónustu, löggæslu, slökkvistörfum og björgunarsveitarútköllum. Veðrið gengur niður eftir kl. 15 samkvæmt spá sem þýðir að ýmis þjónusta raskast eða fellur niður í fyrramálið og jafnvel allan daginn.

Helstu upplýsingar

· Almennt skólahald fellur niður en leik- og grunnskólar verða opnir með lágmarksmönnun

· Sundlaugar í Hafnarfirði verða lokaðar en opna kl. 15

· Frístundaheimili opna þegar viðvörunum lýkur. Eins og staðan er núna er appelsínugul viðvörun í gildi til kl. 15:00

· Skerðing verður á heimaþjónustu en neyðartilvikum sinnt eftir föngum

· Söfn verða lokuð á morgun nema annað verði gefið út

· Þjónustuver og þjónustumiðstöð verða opnar og svara í síma

Fólk er hvatt til þess að halda sig heima í fyrramálið og fylgjast vel með tilkynningum frá almannavörnum í fjölmiðlum. Samkvæmt spám á veður að ganga niður eftir hádegi og verður hægt að vera á ferðinni eftir kl. 15 að öllu óbreyttu. Staðan verður endurmetin í fyrramálið.

Frekari upplýsingar um veðurviðvaranir á síðu Veðurstofunnar: https://www.vedur.is/vidvaranir/svaedi/rvk


Skarðshlíðarskóli | Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 527-7300 | Netfang: skardshlidarskoli@skardshlidarskoli.is