Matarþjónusta hefst 13. janúar
Matarþjónusta hefst í
hádegi í grunnskólum Hafnarfjarðar frá fimmtudegi 13. janúar eftir að hafa
legið niðri frá áramótum sökum strangra sóttvarnareglna. Búið er að heimila notkun
matsala ef þeir eru hólfaðir niður og fjölgun matarstöðva sé í samræmi við
hólfafjöldann þar sem fjöldatakmörk í hólfi eru þau sömu og áður, eða 50 manns
(nemendur sem sitja saman eftir bekkjum og starfsfólk með grímur). Þessi
framkvæmd er áskorun fyrir skólana þar sem matsalir skóla eru ekki hannaðir
sérstaklega með hólfun í huga og aðstæður eru að auki mismunandi milli skóla.
Matarafgreiðslan fer fram í samræmi við matarpantanir sem foreldrar hafa gert
fyrir janúar og matseðil viðkomandi vikudaga. Önnur matarþjónusta er óbreytt.
Það eru mikið um kórónaveirusmit í samfélaginu og er þess vænst að þótt
matsalir opni á ný fjölgi smitum nemenda ekki vegna opnunarinnar miðað við það
sem nú er. Það verður áfram hugað að sóttvörnum í matsölum grunnskólanna og
ábendingar ykkar til barna ykkar þess efnis eru vel þegnar.
Með þökk fyrir biðlundina gagnvart lokuninni eftir áramótin.
Skrifstofa mennta- og lýðheilsusviðs Hafnarfjarðar.