Lestrarstund á bókasafninu

  • Bokasafn

Í vikunni komu nokkrir nemendur úr 2. bekk í lestrarstund á bókasafnið. Við lásum saman bókina Vikkala Sól og hamingjukrúsin eftir þær Kristínu Margréti og Herdísi Björk. Vikkala Sól minnir okkur á að sjá hamingjuna í hinum ýmsum hlutum hvort sem þeir eru stórir eða smáir. Eftir bókalesturinn skrifuðu nemendurnir á miða hvað veitti þeim hamingju og festu þá upp á vegg.


Skarðshlíðarskóli | Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 527-7300 | Netfang: skardshlidarskoli@skardshlidarskoli.is