Klukkustund kóðunar

Í þessari viku er verkefnið Klukkustund kóðunar í gangi um allan heim.

Við í Skarðshlíðarskóla tökum að sjálfsögðu þátt og er þetta í annað skiptið sem allur skólinn tekur þátt í verkefninu.

Nemendur forrita í samtals eina klukkustund og notast ýmist við verkefni á blaði, í smáforriti eða á netinu.

Nánar má lesa um verkefnið hér.

Einnig má lesa um forritun í Skarðshlíðarskóla hér



Skarðshlíðarskóli | Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 527-7300 | Netfang: skardshlidarskoli@skardshlidarskoli.is