Blakfélagi Hafnarfjarðar

Fimmtudaginn 6.október var öllum grunnskólum Hafnarfjarðar og Garðabæjar boðið að taka þátt í skólablaki sem er liður BLÍ í að kynna íþróttina. Það voru tvö til þrjú börn saman í liði og virtust allir hafa gaman af. Börn í 4.,5. og 6.bekk Skarðshlíðarskóla tóku þátt og fóru allir með ásamt kennurum. Börnin fengu með sér heim kynningarbækling frá Blakfélagi Hafnarfjarðar sem er með æfingar fyrir börn. Blakið var mikil skemmtun og góð tilbreyting inni í skólastarfið. 


Skarðshlíðarskóli | Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 527-7300 | Netfang: skardshlidarskoli@skardshlidarskoli.is