Opin vika í Skarðshlíðarskóla

Vikuna 9. – 13. apríl verður opin vika hjá okkur í Skarðshlíðarskóla. Þá bjóðum við foreldra sérstaklega velkomin í heimsókn í skólann. Fyrirkomulagið er með þeim hætti að hægt er að heimsækja nemendur inn í hvaða kennslustund sem er, hvaða dag sem er og því geta foreldrar hitt börn sín á þeim tíma sem hentar hverjum og einum þessa vikuna.Við vonumst til að sjá sem flesta.

Kær kveðja,
Starfsfólk Skarðshlíðarskóla.


Skarðshlíðarskóli | Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 527-7300 | Netfang: skardshlidarskoli@skardshlidarskoli.is