Leikjanámskeið fyrir útskriftarhópa leikskólanna

Leikjanámskeið fyrir útskriftarhópa leikskólanna

Frá 8. – 21. ágúst, eða frá því að sumarlokun leikskólanna lýkur og þar til starf grunnskólanna hefst með formlegum hætti, er boðið uppá fjölbreytt og uppbyggileg leikjanámskeið fyrir 6 ára útskriftarhópa leikskólanna í öllum frístundaheimilum.

Námskeiðin eru að hluta byggð upp líkt og hefðbundin leikjanámskeið en mikil áhersla er lögð á útiveru, hreyfingu og hollustu og er sérstaklega er lagt upp með að kenna gömlu góðu leikina. Þá fá börnin á hverju námskeiði tækifæri til að kynnast nýja skólanum sínum og umhverfi hans með það að leiðarljósi að auka öryggi þeirra og vellíðan við upphaf skólagöngu.

Námskeiðin eru fyrir 6 ára börn fædd árið 2013 og standa frá kl. 8:00 – 17:00 en einnig er í boði að vera hálfan daginn (8-12 eða 13-17). Hefðbundinni dagskrá lýkur kl. 16:00 en til kl. 17:00 er róleg innivera, frjáls leikur o.fl.

Verð:
Hver vika, hálfur dagur (frá kl. 9:00 – 12:00 eða 13:00 – 16:00): 4.450 kr.
Hver vika, allur dagurinn (frá kl. 9:00 – 16:00): 8.600 kr.

Börnin koma með hádegismat að heiman og nesti fyrir morgun- og síðdegishressingu.

Skráning fer fram í gegnum „Mínar síður“ á www.hafnarfjordur.is - skráning á sumarnámskeið 2019. Það opnar 25. apríl fyrir skráningu. Skráning á leikjanámskeið þarf að fara fram fyrir miðnætti á fimmtudögum eigi barn að byrja á mánudeginum á eftir. Á mínum síðum er hægt að greiða með kreditkorti og debetkorti en hægt er að staðgreiða skráningu í Þjónustuveri Hafnarfjarðabæjar, Strandgötu 6.

Nánari upplýsingar um námskeiðið eru í síma 527-7309 eða í tölvupóstfangið fjolasig@skardshlidarskoli.is


Skarðshlíðarskóli | Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 527-7300 | Netfang: skardshlidarskoli@skardshlidarskoli.is