Íþrótta- og leikjanámskeið fyrir 7-9 ára.

Íþrótta- og leikjanámskeið fyrir 7-9 ára.

Í sumar eru íþrótta- og leikjanámskeið starfrækt í öllum frístundaheimilum í Hafnarfirði. Á þeim er farið í fjölbreyttar íþróttir og leiki, göngu- og hjólaferðir og margt fleira.

Námskeiðin hefjast 11. júní og standa flest yfir til 5. júlí.

Námskeiðin eru fyrir börn fædd 2012-2010 (7-9 ára) og standa frá kl. 9.00-12.00 og kl. 13.00-16.00, ókeypis gæsla er á milli kl. 8.00-9.00, 12.00-13.00 og 16.00-17.00.

Verð: Þátttökugjaldi er stillt í hóf. Veittur er 50% systkinaafsláttur. Minnst er hægt að greiða fyrir viku í senn.
Hver vika, hálfur dagur (frá kl. 9:00 – 12:00 eða 13:00 – 16:00): 4.450 kr.
Hver vika, allur dagurinn (frá kl. 9:00 – 16:00): 8.900 kr.

Börnin koma með hádegismat að heiman og nesti fyrir morgun- og síðdegishressingu.

Frá 8.-26. júlí verður íþrótta- og leikjanámskeið í Íþróttahúsinu í Setbergsskóla

Frá 6. til 21. ágúst verða íþrótta- og leikjanámskeið á tveimur stöðum.
1) Í Hraunvallaskóla sem sér um Hvaleyrarskóla, Skarðshlíðarskóla og Áslandsskóla.
2) í Lækjarskóla í íþróttahúsinu sem sér um Öldutúnsskóla, Setbergsskóla og Víðistaðaskóla.

Skráning fer fram í gegnum „Mínar síður“ á www.hafnarfjordur.is - skráning á sumarnámskeið 2019. Það opnar 25. apríl fyrir skráningu. Skráning á leikjanámskeið þarf að fara fram fyrir miðnætti á fimmtudögum eigi barn að byrja á mánudeginum á eftir. Á mínum síðum er hægt að greiða með kreditkorti og debetkorti en hægt er að staðgreiða skráningu í Þjónustuveri Hafnarfjarðabæjar, Strandgötu 6.

Nánari upplýsingar um námskeiðið er í síma 527-7309 eða í tölvupóstfangið fjolasig@skardshlidarskoli.is


Skarðshlíðarskóli | Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 527-7300 | Netfang: skardshlidarskoli@skardshlidarskoli.is