Gönguferð að nýja skólanum

Í dag fórum við í gönguferð að nýja skólanum okkar og skoðuðum hvernig framkvæmdirnar ganga. Þar tók Toggi verkefnastjóri  á móti okkur og sagði okkur frá nýja skólanum. Hann sýndi okkur teikningu af skólanum og krakkarnir fengu að spyrja hann spurninga.  Við borðuðum hamborgara úti í blíðskapar veðri áður en haldið var aftur heim. Skemmtilegur dagur og krakkarnir til sóma.

Óskum ykkur gleðilegra páska :)


Skarðshlíðarskóli | Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 527-7300 | Netfang: skardshlidarskoli@skardshlidarskoli.is