Þemadagar 22.-25. mars
Dagana .22 – 25. mars eru þema dagar í Skarðshlíðarskóla. Þemað að þessu sinni er „Galdrar“ og verður spennandi að vita hvers nemendur verða vísari eftir þessa viku. Eitt er víst að það verður gleði og sköpun í gangi.
Hefðbundinn stundatafla verður lögð til hliðar og nemendur fara ekki í sund og íþróttir. Allir byrja kl. 8:10 og verða búnir í skólanum kl. 13:10.
Nemendum í 1. – 4. bekk er blandað saman í 11 hópa og fara á milli mismunandi stöðva en ljúka deginum í heimastofu.
Nemendum í 5. – 9. bekk er blandað saman í 9 hópa og eru á einni stöð alla fjóra dagana.
Nemendur þurfa ekki að vera með skólatösku, nóg að vera með t.d. íþróttapoka fyrir nesti.
Ávaxta áskriftin er eins og venjulega en þar sem nemendur eru dreifði um allan skólann munum við vera með 2 – 3 stöðvar þar sem nemendur koma og ná sér í ávexti.
Til stóð að hafa opið hús föstudaginn 26. mars en því miður er ekki svigrúm til þess vegna sóttvarna. Við ætlum að vera með fréttahóp sem mun senda frá sér fréttir og myndir og ætlum að reyna að stilla upp eitthvað af vinnu nemenda í stofum á jarðhæð nálægt glugga þannig að fjölskyldur geti komið saman og skoðað þegar þær hafa tækifæri til.
Föstudaginn 26. mars er skertur dagur, nemendur mæta kl. 10:00 í skólann (ath Skarðssel er opið. sjá póst frá Fjólu) og eru í skólanum til kl. 11:10. Þá er hádegismatur og síðan fara nemendur heim (eða í Skarðssel).