Teikningar 3. bekkjar í Global Village Museum
Síðastliðið haust var umsjónakennari 3. bekkjar spurð hvort hún væri til í að taka þátt með nemendum sínum í sýningu á teikningum barna frá ýmsum löndum heimsins. Sýningin var haldin í The Global Village Museum in Fort Collins, Colorado og bar sýningin yfirskriftina „Children's art from around the world representing magical and mythical creatures“ og var eins og nafnið gefur til kynna sýning á túlkun barna á goðsagnakenndum og töfrandi verum eða skepnum. Krakkarnir voru sko meira en til í þetta og við fórum að hugsa hvað væri best að gera. Okkur datt í hug að tengja þetta við jólin og þar með jólaköttinn þar sem hann flokkast undir goðsagnakennda veru í lífi okkar Íslendinga.
Við lásum saman söguna um jólaköttinn og skoðuðum myndir af honum auk þess sem sumir gerðu sér ferð í miðborg Reykjavíkur til að berja skepnuna augum þar sem hún stóð ljósum prýdd á Lækjartorgi.
Sýningin var svo haldin, af því er við best vitum í febrúar s.l. og fengum við eftirfarandi myndir sendar með þökkum til okkar allra og hrósi til krakkanna fyrir frábæra vinnu. Hér má sjá þakkarpóstinn og svo er linkur á myndirnar af sýningunni.
Hér má sjá fleiri myndir: Global Village Museum
Hello Elva -
Please see the attached document with a few photos of the current exhibit at the Global Village Museum in Fort Collins, Colorado of children's art from around the world representing magical and mythical creatures.
The Yule Cat area is a big hit - the details in the drawings are great, and the bright red blood always brings comments ..... You'll see on the last page they even have a yule cat spinning cube that draws people in, with a curiosity of what's on all the sides.
Please tell your students thank you so very much for their talents and contributions to this exhibit. (And thanks again for your efforts to get it done and sent in to us!)
As classes of students come through the museum and learn about Iceland, there's a connection there between the countries. That's sort of cool.