Spurningakeppnin Veistu Svarið

  • Fjola

Spurningakeppnin Veistu Svarið byrjar í kvöld, miðvikudaginn 3. febrúar, en það er spurningakeppni á vegum Hafnarfjarðar fyrir grunnskóla í Hafnarfirði.
Keppnin í ár verður örðuvísi en undanfarin ár vegna covid, en í kvöld munu allir skólarnir keppa í gegnum netið og komast fjórir skólar áfram í 4 liða úrslitin sem eru eftir viku.
Fyrir hönd Skarðshlíðarskóla eru 3 flottir nemendur úr 8.bekk, Guðlaug, Brynja og Haukur. Sú sem heldur utan um liðið er Hrafnhildur Emma, aðstoðarverkefnastjóri.
Við óskum liðinu góðs gengis en keppnin verður sýnd í beinni í Skarðinu í kvöld fyrir nemendur.


Skarðshlíðarskóli | Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 527-7300 | Netfang: skardshlidarskoli@skardshlidarskoli.is