Skólasetning þriðjudaginn 24. ágúst

Skólasetning fyrir nemendur í 2. – 10. bekk verður í heimastofum hvers árgangs fyrir sig. Starfsfólk mun vera við alla innganga og á göngum og vísa nemendum á réttan stað.

Nemendur mæta án foreldra sinna.

8:30-9:00 8.-10. bekkur

9:30-10:00 2.-4. bekkur

10:30-11:00 5.-7. bekkur

Að skólasetningu lokinni fara nemendur heim.

Nemendur í 1. bekk mæta með foreldrum sínum í viðtal með umsjónarkennurum 24. og 25. ágúst. Umsjónakennarar í 1. bekk hafa nú þegar sent foreldum boð.

Skarðssel er lokað þriðjudaginn 24. ágúst en verður opið fyrir nemendur 1. bekkjar miðvikudagsmorguninn 25. ágúst.


Skarðshlíðarskóli | Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 527-7300 | Netfang: skardshlidarskoli@skardshlidarskoli.is