Skáknetmót fyrir skóla í Hafnafirði
Kæru foreldrar
Hafnarfjarðarbær vill bjóða öllum grunnskólabörnum á netskákmót alla laugardaga til 12. desember. Skákmótið hefst klukkan 11:00.
Við hvetjum ykkur til að benda börnum ykkar á að taka þátt.
Gjafabréf í Ísbúð Vesturbæjar verður fyrir þrjú efstu sætin næstkomandi laugardag.
Hér eru skrefin sem þarf að fara í gegnum til þess að taka þátt (mjög einfalt):
- Búa til aðgang á www.chess.com (frítt)
- Gerast meðlimur í hópnum “Hafnarfjörður-skólar”: https://www.chess.com/club/hafnarfjordur-skolar
- Skrá sig á mótin sem hægt er að gera allt að 60
mínútum áður en þau hefjast.
Mótin verða einnig auglýst á forsíðu hópsins inná chess.com.
Alla laugardaga 11:00-12:00
https://www.chess.com/live#-r=603127
(Tengill gildir fyrir mótið þann 17. nóvember síðan verða tenglar uppfærðir inná á forsíðu Hafnarfjörður-skólar á chess.com vikulega.)
Við mælum með að þið notið borðtölvu/fartölvu, því Chess.com appið virkar ekki á mótum.
Mennta- og lýðheilsusvið Hafnarfjarðarbæjar