Opnunartími skrifstofu
Skrifstofan opnar eftir sumarfrí þriðjudaginn 18. ágúst og verður opin;
Mánudaga til fimmtudaga frá kl. 8:00-15:00
Föstudaga frá kl. 8:00-14:00
Nýr skrifstofustjóri hóf störf 1. ágúst s.l. Hún heitir Fanný Lilja Hermundardóttir og er menntaður viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Bifröst. Hún er nýflutt af Snæfellsnesinu þar sem hún vann á skrifstofu Lögreglunnar á Vesturlandi. Endilega heilsið upp á Fanný Lilju þegar þið gangið um skólann. Hennar aðstaða er í móttökunni á 2. hæð.
Skólasetning verður þriðjudaginn 25. ágúst. Nánari upplýsingar koma fljótlega.