Nýir nemendur í 2. - 10. bekk
Fimmtudaginn 18. ágúst kl. 17:00 - 18:30 bjóðum við nýjum
nemendum í 2. - 10. bekk að koma í heimsókn ásamt forráðamönnum.
Við byrjum á stuttri kynningu á skólanum í hátíðarsalnum og förum síðan í
skoðunarferð um skólann.
Við verðum staðsett við innganga skólans, fyrir framan og aftan skólann þar sem
skólamerkið er og vísum ykkur leiðina :-)
Hlökkum til að hitta ykkur!
Stjórnendur Skarðshlíðarskóla