Nemendurnir í 5.bekk setja sig í spor landnámsvíkinganna
Nemendur í 5. bekk hafa verið að lesa söguna af Leifi heppna og unnið verkefni samhliða lestrinum. Þar settu nemendur sig í spor víkingafjölskyldu sem flytur frá Noregi alla leið til Íslands. Hver hópur setti saman sína fjölskyldu, bjó til persónur og ákvað hvers vegna hún er að flytja. Svo var að mörgu að hyggja við undirbúning, s.s. Hvernig skip þarf að smíða? Hvað þarf að taka með? Hvernig ætlum við að rata yfir hafið? Að lokum skrifuðu nemendur kveðjubréf fyrir sinn víking þar sem þeir settu sig inn í hugsanir og tilfinningar þess sem er að yfirgefa land sitt og ástvini. Eins og sjá má á myndunum stóðu nemendur sig einstaklega vel og höfðu gaman af vinnunni.