Myndbönd fyrir foreldra barna á Íslandi

Fræðslu- og rannsóknastofa um þroska læsi og líðan barna og ungmenna hefur útbúið myndbönd fyrir foreldra barna á Íslandi. Verkefnið var styrkt af samfélagssjóði Háskóla Íslands. Markmiðið er að kynna niðurstöður íslenskra og erlendra hágæðarannsókna á einfaldan og hagnýtan hátt.

Þetta eru tvö myndbönd, annars vegar Málörvun leikskólabarna og hins vegar Fjöltyngd börn í íslenskum leik- og grunnskólum. Síðarnefnda myndbandið er með textum á ýmsum tungumálum. Myndböndin fjalla um það hvernig foreldrar geta stutt við málþroska barna sinna og þar með gengi þeirra í námi.

Við leitum til skólaskrifstofa landsins með þá beiðni að myndböndunum verði dreift á leik- og grunnskóla hvers sveitarfélags sem síðan sjá um að koma þeim til foreldra barna á Íslandi, bæði þeirra sem eiga íslensku sem móðurmál og einnig þeirra sem tala annað tungumál en íslensku heima.

Myndböndin eru aðgengileg á heimasíðu Rannsóknastofunnar https://menntavisindastofnun.hi.is/is/rannsokna-og-fraedslustofa-um-throska-laesi-og-lidan-barna-og-ungmenna

Með fyrirfram þökk

Dr. Jóhanna Thelma Einarsdóttir og Dr. Sigríður Ólafsdóttir


Skarðshlíðarskóli | Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 527-7300 | Netfang: skardshlidarskoli@skardshlidarskoli.is