Litrík fiðrildi

  • Fidrildi
  • Fidrildi-2
  • Fidrildi-3
  • Fidrildi-1

Nemendur í 3. bekk hafa verið að sauma fiðrildi sem er eitt af þeim verkefnum sem þau glímdu við í textílmennt í vetur. Þau byrjuðu á því að teikna fiðrildi og lita það, svo var það klippt út og notað sem snið. Næst voru fiðrildin klippt út úr efni og saumuð saman í höndunum og að lokum skreytt.

Gaman hefur verið að vinna með tákn skólans og hafa nemendur útfært fiðrildin sín á ólíkan hátt. Útkoman er mjög fjölbreytt og litrík fiðrildi.


Skarðshlíðarskóli | Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 527-7300 | Netfang: skardshlidarskoli@skardshlidarskoli.is