Litla upplestrarkeppnin
Þriðjudaginn 25.apríl var
Litla upplestrarhátíðin haldin í Skarðshlíðarskóla hjá nemendum í 4.bekk.
Nemendur hafa æft sig í allan vetur og var þetta einskonar uppskeruhátíð þeirra
vinnu. Nemendur buðu foreldrum sínum og öðrum gestum á hátíðina þar sem þau lásu
bæði sögur og ljóð ýmist saman í hóp eða einstaklingslega.
Litla upplestrarkeppnin byggir á sömu hugmyndafræði og Stóra upplestrarkeppnin
þar sem ávallt er haft að leiðarljósi að keppa að betri árangri í lestri,
munnlegri tjáningu og framkomu. Keppnishugtakið felur eingöngu í sér það
markmið að keppa við sjálfan sig, að verða betri í dag en í gær.
Nemendur stóðu sig allir vel og voru skólanum til sóma. Að lok keppninnar fengu
nemendur viðurkenningarskjal sem Ingibjörg Einarsdóttir, verkefnastjóri keppninnar,
afhenti þeim.