Fréttir af 6. bekk
Í 6.bekk erum við að vinna mikið með samskipti. Við skoðum hugtökin jákvæður og neikvæður leiðtogi og hvað þeir leiðtogar hafa að leiðarljósi í sínum samskiptum og hegðun. Við höfum unnið síðustu vikur með neikvæða og jákvæða krukku þar sem börnin skrá niður alla neikvæða og jákvæða hegðun sem þau verða vitni að hjá bekkjarfélögum sínum nafnlaust og setja í viðeigandi krukku. Síðan er farið yfir það sem kemur upp úr þessum krukkum í lok viku, orð og hegðun eru rædd, bæði það jákvæða og neikvæða. Oft skapast flottar, góðar og nauðsynlegar umræður um það sem kemur upp. Síðan eru öll orðin tekin saman og send heim til foreldra til að þau séu meðvituð um hvaða orð og athafnir eru í gangi í bekknum. Börnunum finnst þetta mjög áhugavert og hefur þetta skilað miklum framförum í framkomu bekkjarfélagana við hvort annað.