Endurskinsmerki frá Heilsubænum Hafnarfirði
Heilsubærinn Hafnarfjörður gaf börnum í 1.bekk endurskinsmerki nú á dögunum. Nauðsynlegt er að vera vel upplýstur þegar mesta skammdegið er að ganga í garð og mikilvægt að auka öryggi barnanna í umferðinni um bæinn okkar.