Bréf frá Mennta og lýðheilsusviði

Til foreldra nemenda í grunnskólum Hafnarfjarðar.

Þriðjudaginn 3. nóvember 2020 taka gildi nýjar sóttvarnarreglur og ná til 17. nóvember nk. Að sumu leyti eru sóttvarnarfyrirmæli flóknari nú en áður og krefjast meira af nemendum og skólunum en áður. Skólastjórnendur grunnskólanna hafa alla helgina verið að undirbúa breytingar og nemendur, stjórnendur, kennarar og annað starfsfólk skóla er í dag að undirbúa sig fyrir næstu vikur. Meginmarkmiðið er að halda úti sem mestu og bestu skólastarfi miðað við þær sóttvarnakröfur sem gerðar eru. Það er þó óhjákvæmilegt annað en að breytingarnar muni hafa áhrif á skóladaginn hjá öllum nemendum á einhvern hátt. Við kynnum hér aðgerðir sem munu gilda næstu tvær vikurnar.

Kennslustarfsemin verður einfölduð í skólanum. Kennsla fer fram í heima-/umsjónarstofum næstu tvær vikurnar. Það verður ekki sund- eða íþróttakennsla í íþróttahúsum og engin kennsla fer fram í list- og verkgreinastofum. Starfsfólki verður skipt í hópa þar sem ekki verða fleiri en 10 fullorðnir og þeir tengjast um leið einu kennsluhólfi (sjá hér neðar). Hver skóli útfærir nánar skipulagið en nemendur á sama aldri í grunnskólum Hafnarfjarðar munu fá jafnmikla kennslu umræddan tíma. Foreldrar fá það skipulag sérstaklega frá skóla fyrir hvern hóp/bekk.

Nemendur í 1.-4. bekk (yngsta stig) munu fá fullan skóladag en sú kennsla mun eingöngu fara fram í skólastofum umsjónarbekkja. Nemendum er skipt í kennsluhólf sem í geta verið allt að 50 nemendur (tveir bekkir) og innan þess geta allt að 10 fullorðnir verið. Kennsla verður 6 kennslustundir (u.þ.b. frá kl. 8/8.30-13/13.30) á dag eða fram að því að nemendur fara í frístundaheimili hjá þeim sem þegar eru þar skráð en aðrir nemendur fara heim. Starfsemi frístundarheimilis verður áfram í umsjónarstofu skráðra nemenda en ekki í húsnæði frístundaheimilisins meðan á þessum aðgerðum stendur. Nemendur fara út í frímínútur eftir kennsluhólfum og eiga ekki að blandast öðrum nemendum þar úr öðrum kennsluhólfum. Skólar skipuleggja því mögulega mismunandi frímínútnatíma og/eða skipta skólalóð í afmörkuð svæði fyrir einstök kennsluhólf til að koma þessu við. Nemendur hafa ekki grímur í skólanum en starfsfólk hefur grímur á göngum og mögulega einnig í kennslustundum ef ekki er hægt að koma við 2ja metra reglu milli fullorðinna. Skólalóðin verður eingöngu til afnota fyrir nemendur á yngsta stigi.

Í 5.-10. bekk (mið- og elsta stig) koma nemendur í styttri skóladag að morgni og fram að/yfir hádegismat eða 4 kennslustundir á dag. Hver bekkur (að 25 nemendur) er sérstakt kennsluhólf og blandast ekki nemendum annarra bekkja. Nemendur fara ekki út í frímínútur og verða í stofum sínum allan skólatímann og halda síðan beint heim. Nemendur mega búast við auknu námi heima sökum styttingar á daglegri kennslu í skóla. Þar sem EKKI er hægt að halda 2ja metra fjarlægðarreglu í kennslustofum þurfa ALLIR nemendur í 5.-10.bekk að vera með grímur í skólanum allan skóladaginn, bæði á göngum skólans og í kennslustundum. Starfsfólk skóla skal vera með grímur á göngum og í kennslustofum ef það getur ekki haldið 2ja metra fjarlægð. Skólar útvega þeim grímur sem ekki koma með grímur að heiman. Grímur verða í anddyri innganga sem þau munu ganga um.

Matarþjónusta ALLRA nemenda mun vera með hefðbundnu sniði, þ.e. þeir nemendur sem eru í áskrift að ávöxtum og hádegismat í nóvember munu fá matinn sinn í samræmi við áskrift. Öll neysla matar mun þó færast inn í stofur þar sem nemendur munu fá hádegisverð afhentan í einnota bökkum. Hafragrautur að morgni og sala á síðdegishressingu fyrir nemendur í 5.-10. bekk fellur niður þessar tvær vikur en síðdegishressing í frístundaheimili er óbreytt. Áfram er hægt að koma með nesti í skólann.
Foreldrar eiga ekki að koma inn í skóla nema í undantekningartilvikum, þ.e. ef skóli kallar á foreldra vegna veikinda eða að annarra sérstakra aðstæðna hjá börnum þeirra. Foreldrar sem fylgja börnum sínum í skólann og sækja skulu sleppa þeim og taka á móti þeim við útidyr og ekki fara inn í skóla hvernig sem veðurfari er háttað. Almennt gilda sömu reglur um veikindi og leyfi og verið hafa.

Starfsemi félagsmiðstöðva mun alfarið færast í rafrænt form. Greiningar sál-/talmeinafræðinga (skólaþjónusta) mun áfram verða til staðar undir ströngum sóttvarnareglum en öll ráðgjöf til skóla/foreldra frá ytri ráðgjöfum mun verða í gegnum fjarfundabúnað. Kennsla nemenda í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar mun falla niður í grunnskólunum.
Ekki er á þessari stundu vitað hvað tekur við eftir 17. nóvember.

Sóttvarnaraðgerðirnar eru íþyngjandi fyrir skólastarfið, bæði starfsfólk og nemendur. Við biðjum um þolinmæði gagnvart breytingum á starfsemi sem mun eiga sér stað, bæði styttingu skóladags hjá hluta nemenda og takmarkandi kennslustarfsemi undir þessum kringumstæðum. Mikilvægt er að horfa jákvætt á nýjar aðstæður því hæfni manns til að aðlaga sig að breyttum aðstæðum er eiginleiki sem gefur fleiri tækifæri í lífinu og eykur þrautseigju okkar.

Skrifstofa mennta- og lýðheilsusvið Hafnarfjarðar.


Skarðshlíðarskóli | Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 527-7300 | Netfang: skardshlidarskoli@skardshlidarskoli.is