Bollu- og öskudagur í Skarðshlíðarskóla
Á mánudaginn 15. febrúar er bolludagur og þá mega allir koma með bollu í skólann.
Á öskudaginn er skóli frá 8:10 – 11:10 (8:50-11:10 hjá unglingadeild), síðan fara nemendur í 1. – 4. bekk í hádegismat. Boðið verður upp á samloku, safa og ávöxt. Nemendur í 5. – 8. bekk fá matinn inn í heimastofu Þeir nemendur sem eru skráðir í Skarðssel fara þangað en aðrir heim. Við hvetjum alla til að mæta í búning, en við skiljum öll vopn eftir heima. Nemendur fara í frímínútur en að öðru leyti verður dagurinn óhefðbundinn.