Bókasafnsdagurinn
Bókasafnsdagurinn var haldinn þriðjudaginn 8. september á degi læsis.
Þema bókasafnsdagsins í ár bar yfirskriftina Lestur er bestur hryllilega
spennandi. Þemað var tileinkað öllum hryllingnum sem fyrirfinnst á
bókasöfnun landsins. Að þessu tilefni var bekkjunum boðið á
bókasafnið að lesa bækur, spila eða klippa út draugamyndir.