Appelsínugul viðvörun að morgni þriðjudags 7.febrúar
Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörun fyrir höfuðborgarsvæðið þriðjudaginn 7. feb. kl. 06:00 – 08:00. Spáð er sunnan stormi eða roki og mikilli úrkomu 20-28 m/s. Hvassast verður í efri byggðum og við ströndina. Mikil úrkoma, slydda eða snjókoma. Veðrið gengur mjög hratt yfir en færð getur spillst á meðan á því stendur. Almenna reglan er sú að skóla- og frístundastarf fellur ekki niður nema það sé sérstaklega tilkynnt. Foreldrar meta sjálfir hvort þeir treysta börnum sínum til að ganga í og úr skóla, miðað við aldur og aðstæður. Á heimasíðu skólans má finna leiðbeiningar um https://www.skardshlidarskoli.is/skolinn/roskun-a-skolastarfi/ og einnig hér https://www.shs.is/hvad-get-eg-gert/roskun-a-skolastarfi