Appelsínugul veðurviðvörun í dag - skilaboð til foreldra
Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi frá kl. 13:30 - 17:00 í dag þriðjudaginn 21. september 2021. Forsjáraðilar þurfa að meta sjálfir hvort fylgja þurfi börnum úr skóla eða frístundastarfi. Við appelsínugula veðurviðvörun er meiri þörf á að fylgja börnum úr skólanum. Rétt er að hafa í huga að oft getur verið hvasst í efri byggðum. Ef hálka eða ofankoma fylgir veðrinu aukast líkur á að þörf sé fyrir fylgd.Mikilvægt er að forsjáraðilar hafi í huga að röskun getur einnig orðið á frístundastarfi og skipulögðum æfingum í lok skóladags og séu tilbúnir að sækja börn í skóla og frístundastarf ef þess gerist þörf.