Appelsínugul veðurviðvörun
Sjá https://www.vedur.is/vidvaranir
Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi í dag frá kl. 12.00-16.00 og gul viðvörun frá 16.00-19.00
Forsjáraðilar þurfa að meta sjálfir hvort fylgja þurfi börnum úr skóla eða frístundastarfi. Við appelsínugula veðurviðvörun er meiri þörf á að fylgja börnum úr skólanum. Rétt er að hafa í huga að oft getur verið hvasst í efri byggðum. Ef hálka eða ofankoma fylgir veðrinu aukast líkur á að þörf sé fyrir fylgd. Mikilvægt er að forsjáraðilar hafi í huga að röskun getur einnig orðið á frístundastarfi og skipulögðum æfingum í lok skóladags og séu tilbúnir að sækja börn í skóla og frístundastarf ef þess gerist þörf
Sjá röskun á skólastarfi https://www.shs.is/hvad-get-eg-gert/roskun-a-skolastarfi