Starfsmannamál

Ægir Berg Elísson hefur verið ráðinn umsjónarmaður fasteigna hjá okkur í Skarðshlíðarskóla. Hann vann áður hjá umhverfis og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar og er menntaður húsasmiður og pípulagningamaður.

Elma Vagnsdóttir hefur verið ráðinn námsráðgjafi og verður hún í 20 % stöðuhlutfalli út þetta skólaár en á næsta skólaári verður starfshlutfallið hennar aukið. Elma hefur víðtæka reynslu sem námsráðgjafi og hefur verið námsráðgjafi á Þjónustumiðstöð Breiðholts síðust ár.

Við bjóðum þeim hjartanlega velkomin til starfa.

Í dag er síðasti vinnudagur  hjá Mina Stojanov skólaliða en hún er að fara í fæðingarorlof. Við óskum henni velfarnaðar.


Skarðshlíðarskóli | Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 527-7300 | Netfang: skardshlidarskoli@skardshlidarskoli.is