Slæm veðurspá fyrir morgundaginn

Mikilvægt er að forráðamenn fylgist sjálfir með fréttum af veðri, veðurspám og öðrum upplýsingum sem gætu haft áhrif á skóla- og frístundastarf barna og bregðist við í samræmi við aðstæður hverju sinni. Aðstæður geta þróast með ófyrirséðum hætti og verið mismunandi eftir hverfum og svæðum.
Skóla- og frístundastarf fellur ekki niður nema annað sé tilkynnt. Í upphafi skóladags getur tafist að fullmanna skóla. Skólinn verður engu að síður opinn og opnaður á sama tíma og venja er.

Foreldrar leggja ávallt sjálfir mat á það hvort fylgja þurfi barni í grunnskóla, óháð því hvort tilkynning hafi borist frá yfirvöldum. Meti foreldrar aðstæður svo að ekki sé óhætt að börn þeirra sæki skóla, skulu þeir tilkynna skólanum um það og lítur skólinn á slík tilvik sem eðlilegar fjarvistir. Sama gildir ef börn eða foreldrar lenda í vandræðum á leið sinni til skóla og verða frá að hverfa.

Leiðbeiningar fyrir foreldra


Skarðshlíðarskóli | Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 527-7300 | Netfang: skardshlidarskoli@skardshlidarskoli.is