Síðustu dagarnir

Þriðjudagur 4. júní – Vorferð skólans á Hvaleyrarvatn.

Skóli frá 8:10 – 13:10
Við ætlum að ganga að Hvaleyrarvatni og eyða deginum þar. Rúta kemur og sækir okkur í lok dags. Nemendur þurfa að vera klæddir til útiveru, með húfu, vettlinga og í góðum skóm og hafa með auka sokka. Við höfum aðsetur í skátaskálanum en verðum að mestu úti. Við fáum samlokur, ávöxt og djús frá Skólamat fyrir nemendur í hádegismat en nemendur þurfa að koma með morgunhressingu. Best er að vera með lítinn bakpoka. Nemendur mega koma með útileikföng, en ekki meira en þeir geta borið sjálfir.


Miðvikudagur 5.júní –Íþróttadagur á skólalóð.

Skóli 8:10 - 11:30 
Við endum daginn á að grilla pylsur fyrir alla.


Fimmtudagur 6. júní – Lokadagur skólaársins

Skóli frá 8:10 - 12:00 
Síðasta Mílan.
Ævar vísindamaður kemur og les úr nýrri bók kl. 11:30.

Föstudagur 7. júní

8:30 – Skólaslit á sal skólans. Foreldrar velkomnir með.

 


Skarðshlíðarskóli | Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 527-7300 | Netfang: skardshlidarskoli@skardshlidarskoli.is