Samvera hjá 8. bekk föstudaginn 6. mars

Á föstudaginn sá 8. bekkur um samveru hjá 5. - 8. bekk. Ákvað bekkurinn að setja upp leiksýningu og valdi leikritið Rómeó og Júlía. Sáu þrír nemendur, Elísa, Jóhanna og Arna Rut um handritsgerð og einnig um að vera sögumenn. Allir nemendur tóku þátt í leikritinu með einum eða öðrum hætti. Leiksýningin gekk glimrandi vel og forráðamenn, nemendur og starfsfólk skemmtu sér vel.

Það má með sanni segja að þarna er mikið af upprennandi hæfileikafólki.


Skarðshlíðarskóli | Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 527-7300 | Netfang: skardshlidarskoli@skardshlidarskoli.is