Nýi skólinn, framkvæmdir skoðaðar

  • Nyja-lodin

Í ágúst fóru allir nemendur og starfmenn skólans í göngutúr að skoða lóðina hjá nýja skólanum okkar. Framkvæmdir voru hafnar og meðal annars búið að setja grindverk í kringum byggingarsvæðið. Nemendur og starfsfólk tókust í hendur og gerðu tilraun til að umkringja skólalóðina. Þó að það hafi verið um 120 manns þá áætluðum við að okkur hafi tekist að umkringja ca 1/10 af lóðinni.

 


Skarðshlíðarskóli | Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 527-7300 | Netfang: skardshlidarskoli@skardshlidarskoli.is