4.bekkur

Síðasta fiðrildaveisla 4. bekkjar var í dag. Við tókum strætó á Víðistaðatún. Þar var fullt af krökkum annarsstaðar frá ásamt okkur en allt gekk súper vel! Við borðuðum sparinesti, Elva og Kolla splæstu frostpinnum á línuna og svo var dansað og leikið með hin ýmsu leikföng, hamast í aparólunni og veidd síli. Það var fúlt að ærslabelgurinn var sprunginn en við létum það ekkert á okkur fá enda nóg annað að gera. Veðrið lék við okkur og þetta var frábær morgunn!


Skarðshlíðarskóli | Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 527-7300 | Netfang: skardshlidarskoli@skardshlidarskoli.is